23.1.2009 | 14:02
Stór hættulegt!!!
Það vantar alveg að það sé sandað eða saltað, maður er nú bara heppin að slasa sig ekki svakalega í þessari hálku, eins og á bílastæðinu í skólanum, maður er bara fegin að komast heill inn í skólann....
Þetta ætti ekki að vera hlutur sem ætti að detta út ss að sanda eða salta, vegna sparðnaðar, þetta stofnar fólki í hættu....
|
Hálkuslys í höfuðborginni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2008 | 12:10
ÉG FLYT ÚR LANDI EF ÞETTA LÁN VERÐUR TEKIÐ
Hvurn andskotinn eru þeir að pæla, það kemur ekki til mála að ég eða við almennu ríkisborgarar eigum að skuldbinda okkur með okkar sköttum í svona andskota, díses kræst, ég er flutt úr landi og borga þá ekki fyrir þessa breta NEI TAKK læt ekki bjóða mér þetta, það er verið að skuldbinda íslendinga upp á margar milljónir út af Björgólfs feðgum, þeir ættu að taka ábyrgð á þessu sjálfir, geta selt snekkjurnar sínar og einkaþoturnar sínar, þetta er þeirra mistök og þeirra fall, EKKI OKKAR.
Segjum nei við þessu, þetta er ekki okkar ábyrgð, það verður enginn eftir á þessu litla landi ef þetta á að ganga í gegn, helld að flestir flýja land.....
MÓTMÆLUM ÞESSU. VONA AÐ RÍKISSTJÓRNIN ER SKYNSÖM Í AÐ NEITA ÞESSU LÁNI!!!!!
|
Bretar lána 800 milljónir punda vegna Icesave |
| Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2008 | 15:50
Skoðið þetta....
http://www1.nrk.no/nett-tv/indeks/146301
Ísland í fréttum í Noregi...
|
Forsætisráðherra flytur ávarp |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2008 | 22:38
Mikið að gera þessa dagana
Jæja er að reyna að læra ensku hérna, er eithvað voða upptekin við eithvað annað ákvað að skrifa nokkur orð hingað inn víst ég kíkti hingað.
En hvað um það. er að fara í UTN próf á morgun, svo á fimtudaginn þá er próf úr firstu 4 köflunum í rekstrarhagfræðinni svo á fös er það 4 sögur úr íslendingaþáttum. Good luck to me, mun ekki hafa mikinn tíma fyrir ræktina þessa viku allavega ekki fyrr en á föstudaginn. Það verður bara að hafa það, er að vinna á fullu líka þannig að eithvað verður að lúta fyrir annað.
En jæja allt ágætt að frétta, fyrir utan bíldrusluna. var í söluskoðun hjá toyota, var að spá í aurisin hjá þeim, en í henni komst í ljós að það væri olíu smit á vél og einnig fattaði ég þar sem að það var hrein tilviljun að starfsmaður hjá esso bauðst til að tjékka á olíunni í leiðinni þegar að ég var að kaupa rúðupiss, viti menn olían var nánast búin,..... og ekkert ljós eða neitt kom upp, vélin hefði brætt úr sér ef það hefði gerst, enda mjög óvanalegt að olía fari á 6 þús km, en hann fór í skoðun áður en ég keypti hann ss smurningu og þess háttar, núna er bíllinn keyrður 29620 km og hann er árgerð 2006. fór í B&L áðan og talaði við sölumann, sagði að ég væri búin að fá nóg að þessum bíl enda í vor þá fór hann til þeirra 4 sinnum, enda er það ekki eðlilegt fyrir svona nýlegan bíl. Þeir geta bara hirt þennan bíl..... Nenni ekki að lenda í þvílíkum kostnaði eftir að hann er dottinn úr ábyrgð.
en nóg í bili, ætla að drífa mig í að læra þetta dót hérna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.9.2008 | 21:55
Ógó dugleg
Jæja nú er ekki aftur snúið, ég fór og keypti mér árskort í líkamsræktina, Nautilus í salahverfinu í Kópavogi varð fyrir valinu, mjög góður kostur að það sé sundlaug á staðnum :) en nú er ég búin að fara tvisvar sinnum, fór firsta tímann á þriðjudaginn þá fór ég yfir prógrammið mitt með einkaþjálfara, mjög huggulegt þarna og góð aðstaða, ekki mikið af fólki þannig að maður þarf ekki að "flýta" sér á hlaupa/göngu brettinu, hehe en allavega í bæði skiptin þá skellti ég mér í pottinn á eftir, mjög þægilegt að slaka aðeins á, í bæði skiptin þá var æðislegt veður og sól, þannig perhaps þá fékk maður einhvern smá lit á sig hehe.
Svo er það skólinn sem er byrjaður 14 einingar með 100% vinnu, vonandi drep ég mig ekki á þessu.
Er í ísl 2024, ensku 303, rekstrarhagfræði 103, bókfærslu 273 og svo utn 203.
En jæja ætla að fara að læra svo sofa. vonandi dettur mér í hug að blogga fljótlega aftur heheh :)
Endilega kvittið í gestó eða komment :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2008 | 15:49
Uhm okey....
|
Leikkonu bannað að yfirgefa Íran |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.7.2008 | 08:44
Það eru aðrir hérna sem ættu frekar að vera teknir úr landi....
Og meinaður aðgangur, eins og dópsalar og smyglarar, það eru margir hérna á klakanum, svona fjölskylda sem er undan flótta af ofbeldi og ofsóknum ættu að fá land vistar leyfi, munið þið ekki eftir málinu þar sem einhver kona hérna sem greinilega hafði einhver völd kom tengdadóttur sinni inn sem íslenskan ríkisborgara eftir stuttan tíma, þessi maður er flótta maður, ég man þegar að flótta fólkið kom frá pakistan og margar fjölskyldur fengu samastað á Dalvík, það var tekið vel á móti þeim og gert margt fyrir það fólk, veit ekki hvort margir eru eftir þarna, en afhverju er ekki hægt að hjálpa svona fólki í neyð sem er á flótta.. þetta er illa gert, hverju máli skiptir einn maður ? Er ríkið ekki að leyfa fleiri þúsundir af múslimum (frá austur evrópu) að koma hingað, hverju máli skiptir 1 maður ? Ég segi heim með hann aftur hann á nú konu og barn hérna, afhverju að aðskilja þau svona....
En jæja næturvaktin senn á enda, aðeins 20 min eftir af 12 tíma vakt svo er aftur næturvakt í kvöld same time same shit, frekar mikið af fullu fólki að hringja, frekar skondið, einn sem hringdi og vildi að við pöntuðum og borguðum flug frá skaganum á hestamannamótið, eða bara bát.... ótrúlegt :P skondið að sjá hvernig næsta vakt verður :D
Hafið góða helgi og farið varlega ef þið eruð eithvað á ferðinni, slysin gera ekki boð á undan sér :) and dont drink and drive. :)
Svefngalsin að kikka inn er orðin frekar þreytt...
|
Ramses farinn af flugvellinum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2008 | 01:01
Sumar og sól...
Já það er búið að vera brjálað að gera hjá mér þessa vikuna, systir kærasta míns og kærasti hennar komu í heimsókn til okkar síðasta lau (070608) og fóru í morgun (140608).
Við fórum út um allt á þessum stutta tíma, samt bara hérna á vestur/suður hlutanum.
Fórum í sveitaferð í sveitina mína, þar fóru þau á smá hestbak og smöluðu kindum upp á tún og strákarnir fóru að leita af steinum, og fundu þeir slatta af þeim á meðan við rölltum með hestinn minn í hús.
Á sunnudeginum fóru þau í göngutúr hérna í breiðhollti þar sem að ég var á næturvakt um nóttina og þurfti að sofa því ég var einnig á næturvakt fös-lau nótt og var ekki búin að sofa mikið þar sem að ég þurfti að sækja þau á flugvöllinn á lau. En sunnudagurinn fór í að kíkja í búðir og versla.
Á mánudaginn fórum við að reyna að veiða í vífilstaðavatni mætti halda að það væri dautt hehe, en svo kíktum við í sund sem var allveg æðislegt, fórum í grafarvogslaugina, sól og blíða, enda brann ég smá á enninu.
á þriðjudaginn fórum við svo kallaða gullna hringinn ss. gullfoss og geysi og enduðum á deginum með að reyna að veiða eithvað í þingvalla vatni, fengum því miður ekki neitt, hefði allveg verið til í að borða fisk eftir þessa ferð. En strokkur gaus oft fyrir okkur og við náðum nokk góðum myndum af honum :)
Á miðvikudaginn tóku þau daginn snemma og þau 3 fóru í einkaflug með Steini, flugu yfir keili og suðurhlutann, þeim fannst það æðislegt. Ég fékk hinsvegar að sofa út sem var næs :) Eftir flugið fórum við í kringluna og skoðuðum í búðir. Svo undirbjuggum við okkur fyrir morgundaginn.
Á fimmtudaginn keyrðum við slatta, lögðum af stað úr bænum 9:30 og fórum á reykholt og barnafoss sem er æðislegur staður rosa fallegt þarna, svo keyrðum við upp í borgarnes og tókum bensín og brunuðum svo á snæfellsnesið. Fengum okkur pulsu á vegamótum og keyrðum yfir vatnsheiðina, fórum í gegnum grundafjörð og þar, keyrðum í gegnum ólafsvík og stoppuðum einnig í Bjarnarhöfn, þar smökkuðu þau hákarl, og harðfisk. Stoppuðum á Hellnar og borðuðum nesti, og kíktum við á Arnarstapa, fórum í smá klósett ferð áður en lagt var af stað aftur. Strákarnir fengu að leita af steinum enda var nánast yfir vigt hjá þeim en þau rétt sluppu með 2 kg eftir (ss voru þau með 38 kg).
En þessi vika var allveg frábær í alla staði. Ætla að láta þetta duga í bili, enda er maður vel þreyttur eftir þessa viku, það er mjög þreytandi að keyra svona mikið :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2008 | 00:38
Smá update ef einhver les þetta
Já makki pakki kominn heim, ég búin að vera í 2 daga fríi, á morgun fer ég aftur að vinna 16 til 22, fékk gel neglur í gær, voða ánægð með þær, í dag var ég hjá tannsa, á einn tíma eftir þá á þetta allt að vera komið í gott stand, þarf að taka róandi fyrir tímann svo að deyfingin virki, :P maður verður gjörsamlega útúr kú á þeim, enda skil ég vel afhverju maður má ekki keyra á þeim hehe, en allavega
Moonlight var að byrja á st2 virðist vera eithvað spennandi :) ég er allavega föst við þennan firsta þátt :)
Veit einhver hvar sólin er ? eða er ég bara alltaf sofandi þegar að hún kemur ? er nefnilega búin að vera á næturvöktum og á nokkrar eftir, það er ágætt, rólegt að gera.
Og já ég náði öllu fékk 9 í bókfærslu, 7 í hagfræði, 8 í íslensku, og 10 í UTN ég er nokkuð sátt með þetta :) helld áfram í haust.
Ég verð í sumarfríi 7 júní til 17 júní reyndar fer ég ekki að vinna fyrr en 20 júní, það er ágætis sumarfrí, systir hans makkans og kærasti hennar koma, ætlum að keyra út um allt og eithvað.
Jæja mér dettur ekkert fleira í hug en endilega kvittið í gestó :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2008 | 18:27
Enn ein hugmynd :P
það er náttúrulega eitt sem hægt er að gera, skipta keppninni í tvennt, skandinavia og a-evrópa, og við kjósum efstu í a-evrópsku keppninni og þeir kjósa bestu lögin frá skandinaviu, svo er bara dómnefnd í aðalkeppninni.
Ef þetta verður gert þá er ekki hægt að kjósa bara nágranna þjóðir, þá vonandi verður kosið besta lagið.
En ég verð nú að segja þá fannst mér Rússneska lagið sökka, það heillaði mig alls ekki, það voru fleiri lög þarna sem var miklu betra.
Og Regína og Friðrik stóðu sig allveg frábærlega :)
|
Enn einn sigur alls Rússlands |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Um bloggið
Allt og ekkert
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 10959
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar











